ML - MA miðvikudaginn 15. febrúar
Skrifað af Geir Finnsson   
Miðvikudagur, 08. Febrúar 2012 21:32
Menntaskólinn á Laugarvatni mun næstkomandi miðvikudagskvöld 15. febrúar taka á móti Menntaskólanum á Akureyri. Umræðuefnið verður 'fordómar' og mæla Akureyringar með, en Laugavatn á móti. Ráðgert verður að keppnin hefjist klukkan 20:00.
 
MS - MÍ laugardaginn 11. febrúar
Skrifað af Geir Finnsson   
Sunnudagur, 05. Febrúar 2012 17:58
Menntaskólinn við Sund mun taka á móti Menntaskólanum á Ísafirði næstkomandi laugardag 11. febrúar í sal skólans. Umræðuefnið verður 'Magn umfram gæði' og mælir MS með, en MÍ á móti. Ráðgert er að keppnin hefjist á slaginu klukkan 20:00.
 
MR sigrar Verzló
Skrifað af Geir Finnsson   
Föstudagur, 27. Janúar 2012 00:58
Verzlunarskólinn tók á móti Menntaskólanum í Reykjavík í kvöld þar sem rætt var þróunaraðstoð. Meðmælendur, MR báru sigur úr býtum með 118 stiga mun og var stuðningsmaður MR, Jóhann Páll stigahæsti ræðumaður kvöldsins með 602 stig. Heildarstig voru 3116 og refsistig voru 10. Dómblaðið er komið á síðuna.
 
Kröfum FB hafnað
Skrifað af Geir Finnsson   
Miðvikudagur, 25. Janúar 2012 22:56
Réttur MORFÍs féllst ekki á kröfur Fjölbrautaskólans í Breiðholti að ógilda eigi aðalfund MORFÍs sem fór fram síðastliðið haust. Athuga ber að tveir dómendur skiluðu sératkvæði, en það má meðal annars finna í dómsúrskurði réttarins sem má nú sækja á þessari síðu undir Skjöl og Dómar.
 
Verzló - MR á fimmtudaginn
Skrifað af Geir Finnsson   
Laugardagur, 21. Janúar 2012 20:23
Eftir mjög langar viðræður komust Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík að samkomulagi um umræðuefni, en það verður 'þróunaraðstoð' og mælir MR með, en Verzló á móti. Ráðgert er að keppnin hefjist klukkan 20:00 í stóra sal Verzló fimmtudaginn næstkomandi, þó það yrði ekki útilokað að keppninni yrði frestað um allavega einn dag. Við látum vita um leið og eitthvað breytist.
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 20