Næstu keppnir í Morfís
Föstudagur, 30. Október 2009 00:00
Nú í kvöld hefst fyrsta keppni starfsársins í MORFÍs og eigast þar við FÁ og MS sem eigast við í 16 liða úrslitum. Keppnin fer fram í FÁ klukkan 20:00 og mæla MSingar með tillögunni „Það á alltaf að gera það sem er rökrétt“.

Strax í næstu viku etja Borgó og FVA kappi í Borgó og fer sú keppni 32 liða úrslita fram fimmtudaginn 5. nóv klukkan 20:00 í Borgó. FVA mælir með „Hetjudýrkun“.

Að gefnu tilefni minnir stjórn á að keppnisliðum ber skylda til að tilkynna um tengiliði skólans (nafn, sími, netfang) varðandi upplýsingaöflun. Sömuleiðis þarf að tilkynna um liðaskipan, stað- og tímasetningu keppna, umræðuefni og hverjir mæla með. Vanræksla á þeirri skyldu getur í versta tilfelli orðið til fjársektar keppnisliðs. Vonandi þarf samt ekki að grípa til þeirra ráðstafana.

Að lokum hvetjum við þau lið sem eftir eiga að fastslá keppnisdag í 32 liða úrslitum að gera það sem allra fyrst og við minnum á að framlengdur keppnisfrestur utan tímaramma er torsóttur og ekki veittur nema gild rök liggi þar að baki.

Ég óska liðum velfarnaðar í komandi keppnum og hvet sem flesta til að mæta á fyrstu keppnir starsársins.



Arnþór Axelsson
Formaður MORFÍs
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - 8644992