Ný síða
Laugardagur, 16. Janúar 2010 00:31

MORFÍs hóf göngu sína formlega í lok október og hafa síðan þá farið fram tíu viðureignir í 32 og 16 liða úrslitum. Enn er eftir ein viðureign í 16  liða úrslitum, og takast þar á lið FG og FS.  Lið sem komin eru áfram eru í stafrófsröð; FB, Kvennó, MH, MÍ, MR, MS og Verzló, auk sigurskólans í lokakeppni umferðarinnar.

Fyrr í kvöld, í dómarahléi viðureignar MRinga og Borghyltinga, fór fram dráttur í næstu umferð keppninnar. Gefinn tímarammi fyrir umferðina er 23. janúar til 19. febrúar og skulu því allar fjórar viðureignirnar fara fram á því tímabili. Liðin sem drógust saman eru:

                MS - MÍ

                FB - Kvennó

                MH - FG/FS

                Verzló - MR

Stjórn MORFÍs þakkar skólum fyrir að taka þeim tilmælum að virða tímaramma, allar keppnir utan tveggja fóru/fara fram innan hennar og vonum við að áfram verði gefinn frestur virtur. Ekki var þó allt sem skyldi og mega flestir skólar gefa tilkynningaskyldu sinni betri gaum. Öllum skólum er skylt að láta stjórn vita um keppnir; staðsetningu, tímasetningu, umræðuefni og pól um leið og upplýsingar eru til staðar. Auk þess er heimaskóla skylt að útvega dómurum tölvubúnað með útgefnu töflureikniskjali, og sjá til þess að skjalið skili sér sem fyrst til stjórnar. Hér með skal það tilkynnt að allir skólar sem ekki virða tilkynningaskyldu sína í næstu umferð verða sektaðir í samræmi við lög og er það á ábyrgð hvers skóla að kynna sér í hverju þau lög felast. Lagasafnið er aðgengilegt hér á síðunni.

Eins og glöggir eflaust sjá gekk vefsetur MORFÍs í gegnum rækilega endurnýjun og losnum við þá loks við úr sér genginn forvera hennar. Ýmsar breytingar voru gerðar á grind síðunnar og legg ég til að þið gefið ykkur smá tíma í að kynna ykkur síðuna á nýjan leik. Í flipanum skjöl verða öll skjöl tiltæk, t.d. dómblöð, töflureiknir, dómaralisti, skýrslur stjórnar o.s.fr.

Nýlega gekk nýr meðlimur í raðir stjórnarinnar og er Valdís Steinarsdóttir úr MH kærkomin viðbót í starf meðstjórnanda. Ýmislegt nýtt er um leið í bígerð og vinnur stjórnin hörðum höndum að því að hefja MORFÍs í nýjar hæðir. Nokkrar stórar hugmyndir munu eflaust vekja umtal ef allt gengur að óskum en þær verða kynntar þegar nær dregur.

Við getum þó ánægð sagt frá því að starf okkar að því markmiði að koma MORFÍs aftur í kastljós almennings hefur borið ávöxt. Ef allt gengur að óskum verður úrslitakeppninni því útvarpað á Rás 2.

Að lokum þökkum við samvinnuna á árinu og hlökkum til að starfa áfram með ykkur í MORFÍs.


Arnþór Axelsson 
Formaður MORFÍs 
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. - 8644992

 
Næstu keppnir í Morfís
Föstudagur, 30. Október 2009 00:00
Nú í kvöld hefst fyrsta keppni starfsársins í MORFÍs og eigast þar við FÁ og MS sem eigast við í 16 liða úrslitum. Keppnin fer fram í FÁ klukkan 20:00 og mæla MSingar með tillögunni „Það á alltaf að gera það sem er rökrétt“.
Lesa meira...
 
32 liða og 16 liða úrslit '09-'10
Þriðjudagur, 27. Október 2009 00:00
Þriðjudaginn 20. október síðastliðinn, fór fram dráttur fyrir fyrstu tvær umferðirnar í MORFÍS 2009-2010. Mikil spenna liggur í loftinu og eru margir skólar byrjarðir að skipuleggja viðureignirnar sín á milli. Þó vil ég minna fulltrúa skólanna á að láta stjórn MORFÍS vita þegar allt er orðið ljóst með dagsetningar, staðsetningar og aðrar -ingar eins fljótt og auðið er, svo skipulagningar geti hafist.
Lesa meira...
 
Um eðli dómblaða, og næstu keppnir.
Laugardagur, 07. Nóvember 2009 00:00
Nú er fyrstu tveimur keppnum starfsársins lokið og bar MS sigurorð af FÁ, meðan Borgó sigruðu FVA. Á döfinni eru nokkrar keppnir og byrja herlegheitin á viðureign Hraðbrautar og MK. Keppnin fer fram klukkan 20:00 í MK, þann 9. nóvember og mæla MKingar með umræðuefninu „fíkn er sjúkdómur“. Á eftir þeim mætir Tækniskólinn FG og fer sú keppni fram þann 12. nóvember, að öllum líkindum í húsakynnum Tækniskólans, en frekari upplýsingar hafa ekki borist MORFÍsstjórn.


TITILLSTÆRÐ
NÁ Í ÞETTA SKJAL (terrantribune-custom-modules-j15.pdf)test77 Kb
Lesa meira...